Innlent

Slapp ómeiddur úr bílveltu

Fólksbifreið valt í umdæmi Selfosslögreglu laust eftir klukkan sjö í morgun á Biskupstungnabraut á móts við bæinn Torfastaði. Ungur ökumaður var einn í bílnum og slapp hann nánast ómeiddur úr veltunni. Bifreiðin er hins vegar ónýt. Lögregla segir piltinn hafa verið allsgáðan og kennir reynsluleysi hans um slysið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×