Innlent

Fangageymslur fylltust á Selfossi

Allar fangageymslur lögreglunnar á Selfossi fylltust í nótt. Þar gista nú sex karlar á milli tvítugs og þrítugs, allir handteknir í tengslum við fíkniefnaneyslu. Sá fyrsti var handtekinn undir stýri í nótt, undir áhrifum fíkniefna. Lögregla fann kannabisefni á manninum og var hann lagður til svefns í fangaklefa. Í framhaldinu var gerð húsleit í húsi á Selfossi og þar fundust kannabisefni og voru tveir menn handteknir. Síðar um nóttina vaknaði grunur um frekara fíkniefnamisferli í bænum og var ráðist til húsleitar í öðru húsi. Þar fundust kannabisefni og lítilræði af amfetamíni og voru þrír menn handteknir í því húsi og þeim vísað til hvílu í fangaklefum lögreglunnar sem þar með voru fullir. Allir mennirnir verða yfirheyrðir síðar í dag. Sumir þeirra hafa komið við sögu lögreglunnar áður. Lögregla vill ekki gefa upp að svo stöddu hversu mikið magn af efnum fannst en grunar að það sé allt til eigin nota.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×