Menning

Ómissandi í skólann

Þegar valin er skólataska fyrir yngstu kynslóðina þá er mikilvægt að hún sé vel gerð svo hún valdi ekki barninu einhverjum óþægindum. Í Pennanum Eymundsson fást mjög góðar skólatöskur fyrir unga fólkið sem er að feta sín fyrstu spor á skólabrautinni. Þar er hægt að fá skólatöskur með mjúku baki og vatnsheldum botni og einnig fylgir með nestispoki og vatnsbrúsi. Bæði eru til töskur fyrir stelpur og stráka og koma þær í tveim stærðum. Mittisólar og ólar yfir brjóstkassann eru á töskunum sem eru stillanlegar og einnig er hægt að stilla axlarólar svo að taskan passi barninu sem best. Með sumum töskunum fylgir leikfimispoki sem hægt er að taka frá og nota einan og sér. Ekki spillir svo fyrir að töskurnar eru flottar að sjá og með alls kyns hólfum til að geyma allt skóladótið sem er auðvitað ómissandi í skólann. Þessar töskur styðja mjög vel við bakið og hafa vakið mikla lukku hjá íslenskum skólabörnum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.