Innlent

Ný fjölmiðlanefnd skipuð

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að ný fjölmiðlanefnd yrði skipuð til að undirbúa lög um fjölmiðla. Bæði stjórn og stjórnarandstaða skipa fulltrúa í nefndina. Menntamálaráðherra vonast til að geta lagt fram nýtt frumvap á vorþingi. Það þarf væntanlega varla að minna fólk á hvernig umræðan um lög á fjölmiðla endaði í sumar eftir mikinn hamagang. Forseti lýðveldisins neitaði að samþykkja lög á fjölmiðla. Ríkisstjórnin kom í framhaldinu með breytingu á þeim lögum en síðan var málið dregið til baka. Nú er það hins vegar komið af stað aftur en menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, vonast til að betri samstaða náist nú, enda verði nefndin skipuð fulltrúum bæði stjórnar og stjórnarandstöðu. Þorgerður Katrín segir nefndina verða skipaða fimm aðilum, þremur úr ríkisstjórn og tveimur úr stjórnarandstöðu. Hún segist gera sér grein fyrir því að stjórnarandstöðuflokkarnir séu fleiri en tveir en eftir því sem þingmenn þeirra flokka segja sjálfir er stjórnarandstaðan mjög samhent í málinu. Því verði þeim varla skotaskuld að tilnefna tvo fulltrúa í nefndina. Markmið nefndarinnar er að halda áfram þar sem frá var horfið í vinnu síðustu fjölmiðlanenfdar, m.a. með því að fara yfir þá þróun sem átt hefur sér stað í evrópskri fjölmiðlalöggjöf, skoða fjölmiðlaumhverfið með tilliti til stafrænna útsendinga, samþjöppun á eignarhaldi og markaðsstöðu RÚV. Þorgerður telur mjög mikilvægt að nefndin leiti til allra þeirra sem best þekki í málefnum fjölmiðla í vinnu sinni. Ráðherra bendir á að eitt af því sem menn gagnrýndu hvað harðast í umræðunni hafi verið aðferðarfræðin, sem nú verður önnur. Í næsta mánuði hyggst ráðherra efna til fjölmiðlaráðstefnu þar sem bæði innlendir og erlendir sérfræðingar taka þátt. Ráðherra vonast til að geta lagt fram nýtt fjölmiðlafrumvarp á vorþingi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×