Innlent

Fíkniefni í húsleit

Nokkuð af fíkniefnum fannst í húsleit í Grafarvogi sem gerð var hjá manni á þrítugsaldri síðastliðinn föstudag. Þar fundust um 200 grömm af hassi, 200 grömm af maríjúana, átján grömm af kókaíni og sextán grömm af amfetamíni. Manninum var sleppt að loknum yfirheyrslum. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu. Rannsókn málsins er í fullu gangi og er í höndum fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×