Innlent

28 árekstrar í borginni

Tuttugu og átta árekstrar voru tilkynntir til lögreglunnar í Reykjavík í gær og urðu þeir lang flestir eftir að það fór að snjóa síðdegis. Engin slasaðist þó alvarlega en eignatjón var mikið. Þá valt jeppi í ísingu og fljúgandi hálku við Jökulsá í Lóni og stór bíll með tengivagn fór út af í mikilli hálku á Hjallahálsi í Barðastrandasýslu. Hvorugan ökumanninn sakaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×