Viðskipti innlent

Hagar kaupa Skeljung

Hagar hf. hafa eignast allt hlutafé í Skeljungi hf. með kaupum á eignarhaldsfélaginu Sólvindum. Ekki stendur til að gera neinar breytingar á rekstrarfyrirkomulagi Skeljungs og verður fyrirtækið áfram rekið sem sjálfstætt hlutafélag. Pálmi Haraldsson verður áfram stjórnarformaður félagsins og Gunnar Karl Guðmundsson verður áfram forstjóri þess. Kaupverðið, sem er trúnaðarmál, er að mestu leyti greitt með hlutabréfum í Högum en eigendur Sólvinda voru fyrir kaupin stór hluthafi í Högum. Í tilkynningu frá Högum hf. segir að litið sé á kaupin sem tækifæri til þess að koma betur til móts við íslenska neytendur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×