Innlent

Á slysadeild eftur útafakstur

Einn var fluttur á slysadeild með háls- og bakáverka eftir útafakstur skammt frá Selfossi á öðrum tímanum í gærdag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var ökumaður einn í fólksbifreið og ók eftir Vorsabæjarvegi þegar hann missti stjórn á bílnum í hálku og keyrði útaf. Bíllinn lenti á moldarbarði og var bílstjórinn fluttur á slysadeild vegna háls- og bakmeiðsla, en þau eru þó ekki talin alvarleg. Bíllinn er hins vegar mikið skemmdur og var dreginn af slysstað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×