Þriggja stiga tap fyrir Englandi 29. desember 2004 00:01
Íslenska kvennalandsliðið tapaði með þremur stigum, 63-66, fyrir Englandi í seinni vináttulandsleik þjóðanna sem fór fram í Sheffield í kvöld. Enska liðið hafði góð tök á leiknum allan tímann og náði tólf stiga forskoti um tíma í seinni hálfleik. England hafði tveggja stiga forskot í hálfleik, 29-27 og leiddi með níu stigum, 52-43, fyrir lokaleikhlutann. Helena Sverrisdóttir var stigahæst í íslenska liðinu líkt og í fyrri leiknum og skoraði nú 24 stig en Birna Valgarðsdóttir skoraði 23 stig. "Þetta var lélegur leikur hjá okkur og liðið spilaði ekki vel nema í fimm mínútur í fjórða leikhluta. Það var engin barátta í liðinu og það var eins og þær væru þreyttar. Liðið hitti illa og tapaði alltof mörgum boltum og það vantaði að stelpurnar hefðu meira gaman af hlutunum," sagði Ívar Ásgrímsson eftir leikinn. Stig íslenska liðsins í leiknum: Helena Sverrisdóttir 24 (hitti úr 6 af 10 skotum og 11 af 14 vítum) Birna Valgarðsdóttir 23 (hitti úr 5 af 9 þriggja stiga skotum sínum) Rannveig Randversdóttir 5 Helga Jónasdóttir 4 Erla Þorsteinsdóttir 4 Svava Ósk Stefánsdóttir 3 Signý Hermannsdóttir, Alda Leif Jónsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, María Ben Erlingsdóttir og Þórunn Bjarnadóttir léku allar en skoruðu ekki. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir kom ekkert við sögu og Hildur Sigurðardóttir hvíldi í þessum leik vegna meiðsla. Helena Sverrisdóttir skoraði 43 stig í leikjunum tveimur gegn Englandi og skoraði þannig 102 stig í þeim sex landsleikjum sem hún spilaði í ár eða 17 stig að meðaltali í leik. Þetta eru frábærar tölur hjá 16 ára stelpu á sínu fyrsta alvöru ári með landsliðinu en Helena lék aðeins í nokkrar mínútur í fyrstu þremur landsleikjum sínum um áramótin 2002 til 2003.
Körfubolti Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Stefán fær Arsenal í heimsókn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Sjá meira