Innlent

Eldur í íbúðarhúsi á Sauðárkróki

Íbúðarhús á Sauðárkróki er stórskemmt ef ekki ónýtt eftir eldsvoða sem þar kom upp í morgun. Að sögn fréttaritara Bylgjunnar sem er á staðnum stóðu eldtungur út um glugga hússins þegar eldurinn var sem mestur. Fólki var bjargað út úr húsinu fyrr í morgun en ekki liggur ljóst fyrir hvort einhverjum hafi orðið meint af. Slökkvilið og lögregla er á vettvangi og hafa slökkviliðsmenn að mestu náð að ráða niðurlögum eldsins en húsið er mikið skemmt. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×