Innlent

Snarpar umræður á Alþingi

Snarpar umræður standa nú yfir á Alþingi en þar fer fram þriðja og síðasta umræða um síðustu útgáfu stjórnarflokkanna á fjölmiðlafrumvarpinu. Stjórnarandstæðingar gagnrýna enn stjórnarflokkana fyrir að falla frá þjóðaratkvæðagreiðslu. Búist er við að umræðum ljúki nú um hádegisbilið og falla þá fjölmiðlalögin, sem forseti Íslands hafði ætlað að leggja undir þjóðina, úr gildi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×