Viðskipti innlent

Landsbankinn og E*TRADE opna verðbréfamarkað á íslensku á netinu

Landsbankinn, í samvinnu við E*TRADE, eitt þekktasta fyrirtæki heims á sviði verðbréfaviðskipta á netinu, opnar í dag íslenskan verðbréfavef, fyrir milliliðalaus viðskipti með verðbréf í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi. E*TRADE vefurinn er allur á íslensku og þóknanir fyrir viðskipti á honum eru lægri en áður hefur þekkst hérlendis. Notandinn stundar milliliðalaus viðskipti af einum reikningi með hlutabréf, skuldabréf og gjaldeyri í fimm gjaldmiðlum. Það eykur öryggi notenda að Landsbankinn er bakhjarl þjónustunnar og öll samskipti notenda hérlendis eru við bankann. "Það er okkur fagnaðarefni að E*TRADE hafi valið Landsbankann sem samstarfsaðila," segir Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri Landsbankans. "Val þeirra er staðfesting á framsækni Landsbankans," segir hann. "E*TRADE er eitt öflugasta fyrirtæki á sviði alþjóðlegra verðbréfaviðskipta á netinu og við nýtum þau kerfi sem við höfum þegar byggt upp til þess að sækja inn á valda markaði", segir Jens Hoeyer, forstjóri E*TRADE Bank í Danmörku.  "Við lýsum yfir ánægju með samstarf okkar við Landsbankann og erum sannfærðir um að viðskiptavinir bankans muni kunna að meta tækifæri til þess að kaupa og selja á fjórum mörkuðum með lægri þóknunum og auk þess greiðum aðgangi að öflugri upplýsingamiðlun um viðkomandi markaði." E*TRADE BANK A/S DANMARK er dótturfélag í eigu E*TRADE FINANCIAL Corporation.  Fyrirtækið veitir fulla þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta til fagfjárfesta og einstaklinga. Í Danmörku lýtur fyrirtækið umsjón danska fjármálaeftirlitsins og er meðlimur í dönsku kauphöllinni, CSE. Félagið hefur löggildingu til að stunda verðbréfamiðlun á Íslandi.  E*TRADE Financial er skráð í kauphöllinni í New York með auðkennið ET.  Markaðsverðmæti þess er u.þ.b. 310 milljarðar íslenskra króna og hjá félaginu starfa 3.400 manns í 12 löndum.   "Með samstarfi okkar við E*TRADE gerum við viðskiptavinum Landsbankans kleift að eiga milliliðalaus viðskipti á spennandi mörkuðum, ekki bara á mjög aðgengilegan og einfaldan hátt heldur einnig á lægri kjörum en áður hefur þekkst hér á landi. Þjónustan hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum og er t.d. tilvalin fyrir þá sem vilja ná fram aukinni eignadreifingu í verðbréfasafnið sitt", segir Steinþór Gunnarsson, forstöðumaður verðbréfamiðlunar Landsbankans.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×