Innlent

Vilja ræða málin áfram

Fundur samninganefndar kennara og sveitarfélaga stendur enn en hann hófst klukkan tíu í morgun. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins, sagði fyrir augnabliki að nú væru samninganefndir í kaffihléi en myndu setjast aftur að fundi innan nokkurra mínútna. Hann segir ekki tímabært að segja að deilendur hafi nálgast hvorn annan en enn sem komið er sé þó ekkert sem bendi til annars en vilja beggja til að ræða málin áfram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×