Innlent

Funduðu í níu tíma

Launanefnd sveitarfélaganna lagði fram skriflega tillögu að viðræðugrundvelli um launamyndunarkerfi og uppbyggingu þess á fundi með samninganefnd kennara í gær. Fundurinn stóð á níundu klukkustund. Hvorug nefndanna vildi tjá sig efnislega um fundinn. Ríkissáttasemjari boðaði fund klukkan eitt í dag þar sem viðræðum verður haldið áfram. Birgir Björn Sigurjónsson formaður launanefndar sveitarfélaganna sagði of snemmt að segja um hvort hugmyndir nefndarinnar leiði til sátta og samninga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×