Tíska og hönnun

Roberto Cavalli

Það er við hæfi þegar vetur er genginn í garð og skinn og feldir eru jafn vinsæl og raun ber vitni að minna á ítalska fatahönnuðinn Roberto Cavalli sem hefur farið ótroðnar slóðnir með notkun á ýmiss konar feldum í hönnun sinni.

Roberto Cavalli er fæddur í Flórens árið 1942 og kom með fyrstu tískulínu sína árið 1972. Hann náði ekki almennri athygli í tískuheiminum fyrr en um 1990 að Cavalli-línan var endurreist, og með aðstoð konu sinnar Evu Duringer stækkaði hann og styrkti kvenlínuna og kom á fót breiðari karlalínu og prjónalínu.

Fljótlega eftir þetta fékk Cavalli á sig titilinn "Hinn nýi Versace".

Roberto Cavalli hefur undanfarin ár verið í miklu uppáhaldi hjá poppstjörnum og stórleikurum hvíta tjaldsins og ekkert lát virðist vera á.

Engan skal undra þessar vinsældir enda vetrarlínan verjulega safarík, mjúk og loðin með hæfilegum skammti af fallega áprentuðum og prjónuðum efnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.