Innlent

Árekstur á miðri brú

Árekstur varð á miðri brúnni yfir Tungnaá skammt frá Hrauneyjum í gærdag. Glerhált var og náðu ökumenn bílanna sem komu úr gagnstæðri átt ekki að stöðva áður en bílarnir lentu saman að sögn Lögreglunnar á Hvolsvelli. Minniháttar meiðsl urðu á þeim þremur sem í bílunum voru en bílarnir skemmdust mikið. Leiðin yfir brúnna lokaðist í um klukkustund. Hjólaskófla frá Landsvirkjun var fengin til að draga bílana af brúnni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×