Gagnrýni

Kaldhömruð frásögn úr dópheimum

Egill Helgason skrifar
Njörður P. Njarðvík og Freyr Njarðarson: Eftirmál. JPV-útgáfa 2004





Það eru búnar að koma út margar bækur og mörg viðtöl um helvíti dópsins síðan Njörður og Freyr skrifuðu bókina um "Freddý" fyrir tuttugu árum. Það er næstum að maður segi að þetta sæti ekki tíðindum lengur, sé orðið hversdagslegt. En það er ekki alveg svo - þetta er þörf og læsileg bók.



Sagan er auðvitað eins og þúsund aðrar dópsögur. Óhamingjan sem dópið skapar er alltaf keimlík - spírall sem fer misjafnlega hratt niður. En kosturinn við bókina er stíllinn, kaldur og án hluttekningar, næstum tilfinningalaus. Bak við leynist sorg, kannski ákveðin uppgjöf, en hún er varla sýnileg fyrr en í eftirmála bókarinnar.



Í þáttum eins og mínum er stundum fimbulfambað um "lausnir" á eiturlyfjavandanum eins og til dæmis að lögleiða fíkniefni. Sú umræða á svosem alveg rétt á sér. En hún virkar hálf billeg andspænis nöturlegum veruleikanum í svona frásögn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.