Viðskipti innlent

Sami hagnaður og hjá KB banka

Hagnaður Landsbanka Íslands fyrstu níu mánuði ársins var 11,7 milljarðar króna eftir skatta eða jafnmikill og hjá KB banka sem greint var frá fyrr í dag. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður Landsbankans 2,5 milljarðar. Hagnaður þriðja ársfjórðungs var 5,7 milljarðar króna eftir skatta. Arðsemi eigin fjár var 66%. Heildareignir bankans eru 638 milljarðar og hafa aukist um 190 milljarða króna frá sama tíma í fyrra.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×