Sport

Gatorade með Lebron bragði

LeBron James, leikmaður Cleveland Cavaliers í NBA, sló rækilega í gegn með liði sínum á síðasta tímabili. James, sem er aðeins 19 ára gamall, skoraði 20,9 stig að meðaltali í leik auk þess sem hann gaf 5,9 stoðsendingar. Orkudrykkjaframleiðandinn Gatorade setti nýlega á markað drykk með LeBron-bragði, en leikmaðurinn knái fékk það verkefni að velja bragð. Fyrir valinu varð súrberjabragð og fékk James einnig að velja lit á drykkinn, sem ber nafnið Flava 23. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gatorade leitar á náðir NBA-leikmanns því sjálfur Michael Jordan auglýsti á sínum tíma drykki frá fyrirtækinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×