Sport

Leik­maður Ra­vens sakaður um óvið­eig­andi hegðun

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sakaður um óviðeigandi hegðun frá 2012 til 2016.
Sakaður um óviðeigandi hegðun frá 2012 til 2016. Kevin Sabitus/Getty Images

Justin Tucker, 35 ára gamall leikmaður Baltimore Ravens, hefur verið sakaður um óviðeigandi kynferðislega hegðun gagnvart allt að sex nuddurum. Hann neitar ásökununum.

Frá þessu greina hinir ýmsu miðlar nú, þar á meðal Sports Illustrated og The Guardian. Þar segir að sex nuddarar hafi stigið fram og sakað leikmanninn um óviðeigandi hegðun í sinn garð.

Svo slæm var hegðun hans að nokkrir af nuddurunum hafi hætt áður en nuddinu var lokið og hafi ekki unnið með honum síðan. Þá hafa tvær heilsulindir bannað honum að snúa aftur. Í frétt SI kemur fram að konurnar sex hafi ekki þekkt hvor aðra þegar þær sögðu staðarmiðlinum Baltimore Banner sögu sína.

Sögur þeirra eru allar mjög svipaðar. Tucker á að hafa beðið fimm þeirra um að nudda á sér innanvert lærið meðan getnaðarlimur hans var í reisn. Þá hafi hann rekið getnaðarlim sinn í þær. Þrjár þeirra sögðust vera vissar um að hann hafi haft sáðlát á meðan nuddinu stóð.

Talsmaður Ojas-heilsulindarinnar sagði að Tucker hefði verið settur á bannlista eftir að nuddari hafi lagt inn kvörtun vegna hegðunar hans.

Meint hegðun er sögð hafa átt sér stað frá 2012 – þegar Tucker kom fyrst inn í deildina - til 2016. Lögmenn Tucker segja ásakanirnar falskar. Ravens og NFL-deildin hafa ekki enn tjáð sig um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×