Tíska og hönnun

Þórunn opnar fataskápinn

"Ég fylgist ekki það vel með tískunni að ég liggi yfir tískublöðum en maður reynir að hanga inni," segir Þórunn Lárusdóttir söng- og leikkona. "Ég hef mjög gaman af fötum og þá sérstaklega íslenskri hönnun," segir Þórunn og bætir við að hún kaupi gjarnan falleg og dýrari föt hér á landi en hversdagsfötin erlendis. "Ég er mjög hrifin af litum og reyni að eiga alla liti inni í skáp. Þessa dagana eru skærir og sterkir litir í sérstöku uppáhaldi en það mun líklega breytast fjótlega því ég verð að hafa tilbreytingu í þessu. Þá verða svörtu og hvítu fötin tekin upp."

Þórunn segist aldrei hafa verið mikið fyrir skartgripi, þá noti hún helst þegar hún fari eitthvert fínt. "Nú virðast stórar nælur vera komnar inn og það getur vel verið að þær læðist inn í smekkinn minn en þá verður það að sama skapi þegar ég vil vera mjög fín. Dagleg notkun eyrnalokka, armbanda og hringa er hins vegar eitthvað sem ég hef aldrei kynnst." Þórunn segist ekki enn hafa keypt sér jólakjól enda sé það ekkert endilega árlegur viðburður hjá henni. "Ég vil náttúrulega vera fín en mér finnst allt í lagi að vera í gamla jólakjólnum og kaupa mér kannski nýtt hálsmen við. Að vísu er ég að fara til London um helgina svo það getur vel verið að maður kaupi sér eitthvað fallegt þar."

Lestu ítarlegra viðtal og skoðaðu flottar myndir af Þórunni í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.