Innlent

Albert og Illugi fylgja Davíð

Albert Jónsson, sem verið hefur skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og sérlegur ráðgjafi Davíðs Oddssonar, einkum í landvörnum, flyst með Davíð í utanríkisráðuneytið og hefur jafnframt verið skipaður sendiherra frá 15. september. Hann mun starfa í utanríkisráðuneytinu sem sérlegur ráðgjafi Davíðs þar. Þá verður Illugi Gunnarsson áfram aðstoðarmaður Davíðs í nýju ráðuneyti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×