Menning

Keypti vask í útlöndum

Uppáhaldsbúðin þín? Ostabúðin á Skólavörðustíg. Hvað finnst þér skemmtilegast að kaupa? Efni og vefnaðarvöru í saumaskap, gardínur og bólstrun Verslar þú í útlöndum? Mér finnst gaman að kaupa húsbúnað eins og blöndunartæki eða hanka fyrir handklæði og svoleiðis. Ég keypti mér einu sinni vask í Danmörku því þá var úrvalið svo lítið hérna heima. Hann brotnaði reyndar á leiðinni svo ég fór út aftur og keypti nýjan. Tekur þú skyndiákvarðanir í fatakaupum? Nei, alls ekki. Yfirleitt tekur það mig nokkrar vikur að kaupa föt. Ég ber flíkina undir vinkonur mínar, velti fyrir mér við hvað hún passar og hvort ég geti kannski fengið eitthvað lánað við.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×