Innlent

Gríðarlegur fjöldi á útifundi

Fjöldi fólks mótmælti á útifundi í dag þeirri fyrirætlan ríkisstjórnarinnar að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin.  Kröftug steming var á útifundi Þjóðarhreyfingarinnar. Hann hófst við Austurvöll og þrátt fyrir skamman aðdraganda dreif mikinn fjölda að um hálfeitt leytið og var bekkurinn þétt skipaður út í næstu hliðargötur. Ávörp fluttu Hans Kristján Árnason, Örn Bárður Jónsson og Ólafur Hannibalsson sem las upp ályktun fundarins. Hún er á þá leið mótmælt sé harðlega þeirri fyrirætlan að Alþingi nemi úr gildi lög þau er, fyrir atbeini forseta Íslands, hafði verið skotið í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðageiðslu og lögleiði jafnharðan, nær óbreytt, efnisatriði hinni fyrri laga í því skyni einu að koma í veg fyrir að þjóðin kveði upp sinn dóm um þessi lög.. Að því sögðu var gengið yfir til Stjórnarráðsins til að afhenda fulltrúum ríkisstjórnarinnar yfirlýsingu fundarins. Um tíma var þétt þvaga, allt frá Stjórnarráðinu og inn Austurstrætið, að Pósthússtræti. Davíð Oddsson er ekki kominn aftur frá Washington og Halldór Ásgrímsson var einnig fjarverandi í dag. Því var spurning hver gæti tekið við mótmælum fundarins. Forsvarsmönnum Þjóðarhreyfingarinnar var sagt að enginn starfsmaður væri í húsinu en því svaraði mannnfjöldinn með bauli. Vaktmaður lögreglunnar tók þá við ályktun fundarins með það fyrir augum að koma henni til skila. Ólafur Hannibalsson, einn forsvarsmanna Þjóðarhreyfingarinnar, var mjög ánægður með þátttökuna á fundinum. Hann segir það hafa sýnt sig að undanförnu að aðgerðir hreyfingarinnar hafi áhrif að lokum.  Hægt er að horfa á fréttina á Veftíví-síðunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×