Davíð frá störfum á næstunni 21. júlí 2004 00:01
Við setningu þingfundar rétt í þessu sagði Halldór Blöndal, forseti Alþingis, að Davíð Oddsson forsætisráðherra myndi ekki taka þátt í störfum þingsins á næstunni vegna veikinda. Eins og greint hefur verið frá var Davíð fluttur á Landspítala-háskólasjúkrahús í nótt vegna verkja í kviðarholi og er hann í rannsókn á sjúkrahúsinu, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Að sögn Illuga Gunnarssonar, aðstoðarmanns forsætisráðherra, er ekki vitað hve alvarleg veikindi Davíðs eru né hve lengi má búast við að hann verði á sjúkrahúsi. Þetta hafi borið mjög brátt að og komið starfsfólki í forsætisráðuneytinu mjög á óvart, enda hafi Davíð varla misst úr dag vegna veikinda einsog Illugi orðaði það. Að öðru leyti sagðist hann ekki geta tjáð sig frekar um veikindi forsætisráðherra, enda væri hann í rannsókn og henni einfaldlega ekki lokið. Illugi sagði að forsætisráðuneytið gæfi frá sér frekari upplýsingar um leið og þær lægju fyrir. Ásta Möller, varaþingmaður Sjálfstæðisflokks, mun að líkindum taka sæti Davíðs Oddssonar á þinginu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Innlent Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Von á allhvössum vindi og rigningu Veður Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Erlent Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Erlent Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Innlent Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Erlent „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Innlent Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Innlent Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir Innlent Fleiri fréttir „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Fá ekki áheyrn vegna stympinga kennara og nemanda Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Foreldrar eigi að byrja á því að setja sjálfum sér skjátíma „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir „Við erum mjög háð rafmagninu“ Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Sambandsleysi í suðri og óviðunandi ástand í fangelsum Vilja láta rannsaka aðild flóttateymis í máli Oscars Fangelsi oft eina úrræðið Allt á áætlun en Spánarfarar beðnir um að fylgjast með Björn tekur við af Helga Ráðist að fólki við Breiðholtsskóla um hábjartan dag Um níutíu hælisleitendur setið í fangelsi síðustu mánuði fyrir brottvísun Kryfja mál Ásthildar Lóu fyrir opnum tjöldum Saka Ingu um metnaðarleysi eftir skipun flokksmanna í stjórn Engin hópnauðgun um páskana á borði lögreglu Nýtt met slegið í fjölda giftinga Benedikt telur undanbrögð útvarpsstjóra grátleg Vill þyngri refsingar fyrir alvarleg kynferðisbrot Tekur við sem framkvæmdastjóri Bergsins Headspace Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Alþingi kemur saman á ný eftir páskafrí Réðust á tvo menn á göngu Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Sjá meira