Innlent

Þröngt í búi hjá kennurum

Engin afgerandi kaflaskipti urðu á samningafundi kennara og sveitarfélaga í dag. Þrátt fyrir samstöðu og baráttuanda grunnskólakennara er þröngt í búi hjá mörgum þeirra. Frá því verkfallið hófst, þann 20. september, hafa þeir fengið greiddar þrjátíu og átta þúsund krónur úr verkfallssjóði. Kennarar fengu höfðinglegt framlag í verkfallssjóð sinn í dag þegar vinnudeilusjóður SFR gaf þeim tíu milljónir króna. Þrátt fyrir að framlagið sé höfðingleg má segja að það hrökkvi skammt. Tíu milljónir eru sú upphæð sem þarf til að tryggja 4300 grunnskólakennurum í verkfalli greiðslur úr verkfallssjóði í einn dag. Talið er að sjóðurinn standi undir greiðslum til félagsmanna ef verkfallið verður ekki lengra en tveir mánuðir. Óvíst er hvað þá tekur við en ekki hefur fengist vilyrði fyrir greiðslum úr verkfallssjóðum kennara á hinum Norðurlöndunum eins og gerðist í verkfalli árið 1995. Flestir geta verið sammála um að greiðslur til grunnskólakennara úr verkfallsjóði eru lágar. Að sögn Árna Heimis Jónssonar, formanns stjórnar vinnudeilusjóðs, hafa kennarar fengið greiddar þrjátíu og átta þúsund krónur úr verkfallssjóði. Svo er að heyra að þröngt sé í búi hjá mörgum kennaranum um þessar mundir. Berþóra Þorsteinsdóttir, kennari í Háteigsskóla, er búin að láta skipta næsta VISA-reikningi sínum og segist hafa fengið 0 krónur á síðasta launaseðli. Nú skuldi hún sveitarfélaginu 80 þúsund krónur. Guðmundur Jensson, kennari við Laugarnesskóla, segist þurfa að grípa í sparisjóð þeirra hjóna ef þetta heldur áfram mikið lengur. Þórdís Eyvör Valdímarsdóttir, kennari við Réttaholtsskóla, finnst skrítið að talað sé um „digra“ verkfallssjóði því hún sé ekki að fitna af peningunum. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×