Innlent

Líklega setið fram eftir

Samningafundur í vinnudeilu kennara og sveitarfélaga hefur staðið yfir í húsakynnum ríkissáttasemjara frá því klukkan tíu í morgun. Úr Karphúsinu berast þær einu fregnir að líklegt sé að áfram verði setið eitthvað fram eftir. Fundi í gær lauk um kvöldmatarleytið en hann stóð yfir í um tíu klukkustundir. Verkfall grunnskólakennara hófst þann 20. september og hefur nú staðið yfir í þrjár vinnuvikur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×