Innlent

Tveir látnir eftir bílveltu

Tveir menn létust og fimm slösuðust í umferðarslysi í Þjórsárdal um klukkan ellefu í morgun. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi varð slysið með þeim hætti að jeppabifreið valt á þjóðveginum milli Skriðufells og Búrfellsvirkjunar. Í jeppanum voru sjö manns, sex erlendir ferðamenn og einn Íslendingur og var hópurinn á leið í Landmannalaugar. Tveir sjúkrabílar og tveir lögreglubílar fóru á vettvang, sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. Hinir slösuðu voru allir fluttir á slysadeild Borgarspítalans í Reykjavík, þrír með sjúkrabílum og tveir með þyrlunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×