Innlent

Hótaði lífláti

Fertugur maður var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir gegn dóttur sambýliskonu sinnar og kærasta hennar. Maðurinn hótaði sextán ára dóttur sambýliskonu sinnar og sautján ára kærasta hennar lífláti og líkamsmeiðingum. Þegar þau ætluðu að halda á brott í bíl piltsins gekk hann á eftir bílnum og sveiflaði oddhvössu áhaldi úr málmi. Maðurinn neitaði sök en hann var ölvaður þegar hann hafði hótanirnar í frammi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×