Innlent

Varnarliðið verst frétta

Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli hyggst ekki svara neinu um fréttir þess efnis að mikill samdráttur sé yfirvofandi á Keflavíkurflugvelli og bandaríski flugherinn taki yfir stjórn flugvallarins af flotanum. Friðþór Eydal, blaðafulltrúi vísaði til yfirlýsingar astoðarmanns utanríkisráðherra frá því á fimmtudag. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra vildi heldur ekki ræða málið í gær: "Þetta mál er í athugun á milli yfirvalda í Bandaríkjunum og hér og það er í réttum farvegi."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×