Tíska og hönnun

Grúví hárgreiðslustofa

Hártískan er eins og fatatískan í vetur, opin í báða enda, allt er leyfilegt. "Klassískar klippingar eru inni í bland við sterka liti og persónulegt yfirbragð er æskilegt. Fólk á að vera óhrætt við að leika sér og prófa eitthvað nýtt án þess að vera stílfært um of," segir Anna Sigríður Pálsdóttir, eigandi hárgreiðslustofunnar Gallerí Gel.

Gallerí Gel sem opnaði í byrjun september er á horni Klapparstígs og Hverfisgötu. Þetta er ekki hefðbundin hárgreiðslustofa því í húsnæðinu er líka listagallerí sem hefur að markmiði að koma ungu listafólki á framfæri með litlum tilkostnaði. Að baki hár-lista-gallerísins standa Anna Sigríður hárgreiðslumeistari og Aron Bergmann Magnússon listamaður. Nú prýða ljósmyndir Stephans Stephensen sýningarsal Gallerís Gel en listasýningar í galleríinu munu opna með tilheyrandi opnunarpartíi og standa yfir í um það bil mánuð í senn.

Heimsókn í Gallerí Gel kemur skemmtilega á óvart því þar kennir margra grasa; litun og blástur samkvæmt nýjustu tískustraumum, menning beint í æð og suðræn sjóðheit sambamúsík blandast í góðan kokkteil.

Listagallerí starfar einnig í hárgreiðslustofunni.Mynd/Vilhelm





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.