Innlent

Kjósa ekki um verkfall

Samninganefnd Félags leikskólakennara ákvað á fundi í gær að fara ekki í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um boðun verkfalls. Þess í stað hefur nefndin óskað eftir skammtímasamningi við sveitarfélögin fram á næsta ár. Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, segir að full sátt hafi verið um þetta í nefndinni. Ekki hafi verið ákveðið hvaða kröfur verði gerðar vegna skammtímasamnings en næsti fundur leikskólakennara og samninganefndar sveitarfélaga hefur verið boðaður á miðvikudag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×