Ætlum að vinna riðilinn 6. desember 2004 00:01
Keflvíkingar mæta Bakken Bears í Bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik í Árósum í kvöld. Bakken Bears er nýbakaður bikarmeistari í dönsku deildinni og er eina liðið sem hefur náð að sigra Keflavík fram að þessu í Evrópukeppninni. Sá leikur fór fram á heimavelli Keflvíkinga og þar náðu gestirnir að knýja fram sigur, 80-81, eftir að hafa verið undir megnið af leiknum. Með sigri í leiknum hefðu Keflvíkingar haft afar vænlega stöðu fyrir útileikjahrinu liðsins sem nú stendur yfir. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkurliðsins, sagði lið sitt ætla að hefna fyrir leikinn í Keflavík. "Og rúmlega það," sagði Sigurður. "Í þeim leik vorum við óheppnir og lélegir í bland og þurfum að laga ýmislegt sem fór forgörðum þar. Við þurfum t.d. að spila betri sóknarleik en við gerðum heima. Þar var hann ekki nógu góður og við verðum að vera markvissari í okkar aðgerðum." Að sögn Sigurðar verður í mörg horn að líta fyrir leikmenn Keflavíkur gegn Bears-liðinu og þó svo að "stóri maðurinn" í liði Bears, Chris Christoffersen, hafi verið drjúgur í síðasta leik, sé megináherslan lögð á aðra menn sem eru skæðir sóknarmenn. "Chris mun skora sín stig gegn okkur þannig að við höfum engar stórar áhyggjur af honum. Vörnin okkar gegn honum gekk mjög vel síðast þannig að við þurfum frekar að hafa áhyggjur af öðrum leikmönnum Bakken Bears." Með sigri í leiknum eru Keflvíkingar nánast öruggir með að vinna riðilinn og munu leikmenn liðsins því kappkosta að ná því markmiði. "Þetta er algjör úrslitaleikur fyrir okkur en ef þeir ná að vinna munu þeir vinna riðilinn. Þetta er mjög einfalt í okkar huga; Við ætlum að vinna þennan riðil," sagði Sigurður Ingimundarson. Hægt er að fylgjast með leiknum á heimasíðu Keflavíkurliðsins (www.keflavik.is/karfan).
Körfubolti Mest lesið Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Enski boltinn McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sport Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Enski boltinn Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Enski boltinn Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær Fótbolti Fleiri fréttir Cecilía Rán spilar með Internazionale í vetur Luka Modric framlengir samning sinn við Real Madrid Liðsfélagi Hákonar á leið til United Jón Axel fer í nýtt félag á Spáni Borgarstjóri Parísar synti í Signu: „Ekkert of hættulegt“ Fer frá Barcelona til Chelsea Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Wiegman gaf lítið fyrir það að hún gæti tekið við enska karlalandsliðinu Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær „Það var alltaf hugmyndin, þannig að mission completed“ McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Miklar væntingarnar til íslenska landsliðsins réttlætanlegar Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Dagskráin í dag: Upphitun fyrir Opna breska Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Neville vill enskan þjálfara fyrir landsliðið Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Uppgjörið: Shamrock Rovers - Víkingur 2-1 | Víti í súginn í uppbótartíma og Víkingar úr leik Englendingar á EM en Svíar og Norðmenn þurfa í umspil Þorsteinn: Ég held að maður geti ekki farið fram á meira „Náði að pota honum með löngu leggjunum“ Fjör hjá Víkingum í Dublin Faðir Kobe Bryant er látinn Markvörðurinn sótti skóflu og fyllti upp í holu á vellinum Stærsta opna LAN-mót landsins fer fram í ágúst Byrjunarlið Íslands: Fjórar breytingar frá sigrinum mikilvæga Sjá meira