Sport

Páll Axel í þriggja leikja bann

Páll Axel Vilbergsson, leikmaður Grindvíkinga, var dæmdur í þriggja leikja bann í öllum flokkum af aganefnd KKÍ. Páll Axel þótti hafa sýnt óprúðmannlega framkomu í leik Hauka og Grindavíkur í unglingaflokki kvenna en Páll er þjálfari flokksins. Hann tekur út bannið, bæði sem leikmaður og þjálfari í öllum flokkum og missir þ.a.l. af næstu umferð, bæði í deildar- og bikarkeppni. Páll Axel var ekki sáttur við þessa niðurstöðu aganefndar KKÍ. "Ég er svekktur með þennan úrskurð en þar sem að þetta nær ekki fjórum leikjum þá er ekki möguleiki á áfrýjun. Ég verð bara að taka þessu og hef í raun ekkert meira um það að segja," sagði Páll Axel í samtali við Fréttablaðið. Bannið tekur gildi í dag en næsti leikur Grindavíkur er gegn ÍR á heimavelli í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×