Sport

Keflavík áfram í Evrópukeppninni

Keflavík tapaði með 10 stiga mun, 92-82, mun fyrir portúgalska liðinu Madeira í vesturdeildarriðli í Evrópukeppni bikarhafa en leiknum var að ljúka í Portúgal. Þar sem Keflavík tapaði ekki með meira en 13 stiga mun tryggði liðið sér 2. sætið í riðlinum og þar með áframhaldandi þátttöku í keppninni. Magnús Gunnarsson skoraði 21 stig, Nick Bradford 19, Anthony Glover 16, Sverrir Þór Sverrisson 10, Elentínus Margeirsson 9, Jón Nordal 4 og Gunnar Einarsson 3. Keflvíkingar mæta næst liði frá Tékklandi að nafni Mlekara. Það lið fer áfram sem vinnur 2 leiki og Keflavík fær oddaleik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×