Keflavík mætir Fribourg 10. desember 2004 00:01
Keflavík sótti portúgalska liðið Madeira heim í bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik í fyrrakvöld. Leikurinn var jafn þangað til í lokaleikhlutanum þar sem Madeira sigldi fram úr og vann með tíu stigum, 92-82. Keflvíkingar réðu lítið við bakverði heimamanna að þessu sinni. Mario-Gil Fernandes skoraði 24 stig, þar af 18 úr þriggja stiga skotum en maður vallarins var Bobby Joe Hatton sem skoraði 21 stig og gaf 13 stoðsendingar. Fögnuður Madeira var gríðarlegur í lokin enda tryggði liðið sér þriðja sætið í riðlinum og komst þar með áfram í keppninni. Magnús Þór Gunnarsson var stigahæstur Keflavíkurliðsins með 20 stig en Nick Bradford skoraði 19 stig, tók 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Keflvíkingar mæta svissneska liðinu Benetton Fribourg í 8 liða úrslitum en liðin leika tvo leiki, og gilda samanlögð úrslit úr leikjunum tveimur. Fyrri leikurinn fer fram 13. janúar í Sviss en seinni leikurinn 20. janúar í Keflavík. Standi liðin jöfn eftir tvo leik verður gripið til oddaleiks og eru Keflvíkingar með heimaleikjaréttinn. Fribourg hefur staðið sig ágætlega í Evrópukeppninni en ekki í svissnesku deildinni. Liðið er í 9. sæti og er með 10 stig eftir 10 leiki. Nick Bradford, Magnús Þór Gunnarsson og Anthony Glover hafa farið fyrir sínum mönnum í bikarkeppninni til þessa og hafa þeir samanlagt skorað 62,4 stig, 21,4 fráköst og gefið 9 stoðsendingar fram til þessa. Gunnar Einarsson byrjaði vel í keppninni en hefur ekki gengið heill til skógar upp á síðkastið. Hann verður vonandi klár í slaginn fyrir átökin í janúar þar sem Keflavík eygir góða von um að gera betur en í fyrra þegar liðið var slegið út af franska liðinu Dijon í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. smari@frettabladid.is
Körfubolti Mest lesið Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Enski boltinn McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sport Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Enski boltinn Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Enski boltinn Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær Fótbolti Fleiri fréttir Luka Modric framlengir samning sinn við Real Madrid Liðsfélagi Hákons á leið til United Jón Axel fer í nýtt félag á Spáni Borgarstjóri Parísar synti í Signu: „Ekkert of hættulegt“ Fer frá Barcelona til Chelsea Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Wiegman gaf lítið fyrir það að hún gæti tekið við enska karlalandsliðinu Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær „Það var alltaf hugmyndin, þannig að mission completed“ McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Miklar væntingarnar til íslenska landsliðsins réttlætanlegar Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Dagskráin í dag: Upphitun fyrir Opna breska Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Neville vill enskan þjálfara fyrir landsliðið Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Uppgjörið: Shamrock Rovers - Víkingur 2-1 | Víti í súginn í uppbótartíma og Víkingar úr leik Englendingar á EM en Svíar og Norðmenn þurfa í umspil Þorsteinn: Ég held að maður geti ekki farið fram á meira „Náði að pota honum með löngu leggjunum“ Fjör hjá Víkingum í Dublin Faðir Kobe Bryant er látinn Markvörðurinn sótti skóflu og fyllti upp í holu á vellinum Stærsta opna LAN-mót landsins fer fram í ágúst Byrjunarlið Íslands: Fjórar breytingar frá sigrinum mikilvæga Uppgjör: Pólland - Ísland 0-1 | Glæsimark Sveindísar dugði til sigurs Sjá meira