Sport

Francis öflugur í fjarveru Grants

Grant Hill meiddist lítillega á sköflungi á dögunum og missti af síðustu tveimur leikjum Orlando Magic í NBA-körfuboltanum. Það kom ekki að sök því Magic vann báða leikina, í Utah og gegn Golden State Warriors á útivelli í fyrrinótt, 113-109. Það var helst fyrir tilstillan Steve Francis, sem skoraði 36 stig gegn Warriors, að Magic-liðið náði að knýja fram sigur. Orlando Magic er efst í suðausturriðli Austurdeildar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×