Innlent

Dæmd fyrir fíkniefnainnflutning

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu á fertugsaldri í fimmtán mánaða fangelsi og 25 ára mann í tíu mánaða fangelsi vegna fíkniefnabrota sem þau frömdu í ágóðaskyni í febrúar á þessu ári. Til frádráttar dómunum kemur gæsluvarðhaldsvist beggja frá 12. til 20 febrúar. Fólkið var ákært fyrir að hafa staðið saman að innflutningi á átta og hálfu kílói af kannabisi frá Danmörku sem þau ætluðu að selja hér á landi og fyrir að hafa áður flutt inn frá Danmörku um fimm kíló af kannabis sem einnig var ætlað til sölu á Íslandi. Ákærðu höfðu falið fíkniefnin í viðarfjölum og sent ásamt húsgögnum í frakt með skipi og flugi en lögreglan lagði hald á efnin eftir að þau höfðu tekið á móti þeim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×