Sport

Hamar/Selfoss fær liðsstyrk

Hamar/Selfoss hefur fengið liðstyrk fyrir baráttuna á nýju ári en sameiginlega liðið á Suðurlandi hefur nú leikið sjö sigurleiki í röð í deild og bikarkeppni eftir að hafa tapað fyrstu sjö leikjum tímabilsins. 24 ára framherji, Hallgrímur Brynjólfsson, hefur ákveðið að ganga aftur til liðs við Hamar en hann lék með liðinu á síðasta tímabili en hafði farið aftur á heimaslóðirnar í Þorlákshöfn og skorað 16,5 stig að meðaltali með Þór Þ. í 1. deildinni í vetur. Þá hefur hinn tvítugi Kjartan Atli Kjartansson skipt yfir frá Haukum en Kjartan skoraði 1,2 stig að meðaltali í fimm leikjum með Haukum í vetur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×