Sport

Seattle vann Lakers

Seattle vann Los Angeles Lakers 108-93 í NBA deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Rashard Lewis skoraði 37 stig sem er það besta á hans ferli. Hann skoraði sjö þriggja stiga körfur. Þetta var átjándi sigur liðsins á tímabilinu en þeir eru með bestan árangur í deildinni. Kobe Bryant skoraði 35 stig fyrir Lakers. Indiana pacers vann loks sigur, þann fyrsta í sjö leikjum. Jamaal Tinsley skoraði 29 stig fyrir Indiana þegar liðið vann Atlanta Hawks 108-97 eftir framlengingu. Philadelphia vann Denver 110-102. Allen Iverson skoraði 31 stig fyrir 76ers. Minnesota bar sigurorð af Portland,100-89, Chris Webber skoraði sigurkörfu Sacramento gegn Millwaukee í 89-86 sigurleik. New York Knicks vann grannaslag gegn New Jersey Nets, 87-79. Charlotte Bobcats lagði New Orleans Hornets að velli 94-93 eftir framlengingu. Utah marði Los Angeles Clippers 93-91 og Golden State vann Dallas 111-107.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×