Sport

Sonics vann Lakers

Kobe Bryant og Ray Allen leiddu saman hesta sína þegar Seattle Supersonics tók á móti Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt. Lakers er heillum horfið eftir góðan árangur síðustu ára en Sonics er hins vegar á góðri siglingu og þá sérstaklega fyrir tilstillan Allen sem hefur dregið vagninn. Bryant skoraði 35 stig í leiknum en það dugði ekki til því heimamenn unnu öruggan sigur, 108-93. Rashard Lewis, leikmaður Sonics, var stigahæstur maður leiksins með 37 stig. "Þeir lögðu svo mikla áherslu á að stoppa Ray að við nutum góðs af því og fengum mikið af opnum skotum," sagði Lewis. Sonics hefur aðeins tapað fjórum leikjum til þessa en Lakers átta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×