Sport

Liðsstyrkur til Snæfellinga

"Við höfum séð hann spila og okkur líst vel á það sem við sáum og svo verður að koma í ljós hvort hann plumar sig hérlendis," segir Bárður Eyþórsson, þjálfari körfuboltaliðs Snæfells, en liðið fær liðsstyrk um áramótin þegar Bandaríkjamaðurinn Mike Aimes mun ganga til liðs við Snæfellinga. Aimes er hvítur bakvörður frá Delaware - háskólanum og launakröfur hans eru nógu lágar til að Snæfellingar þurfa ekki að hafa áhyggjur af launaþakinu. "Við ætlum okkur að fá einn svona ódýran mann til viðbótar og það ætti að ganga vel, enda nóg af góðum leikmönnum sem fá lítið að spila og eru reiðubúnir að koma fyrir lítinn pening í stuttan tíma. Ég á von á að Aimes komi milli jóla og nýárs og gæti hann því hafið leik strax eftir áramótin."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×