Sport

Spree meiddur

Latrell Sprewell, leikmaður Minnesota Timberwolves, meiddist í leik á föstudaginn var gegn Los Angeles Clippers í NBA-körfuboltanum. Spree, eins og Sprewell er kallaður, er ákveðinn í að ná sér að fullu áður en hann fer á völlinn á nýjan leik. "Eins og er get ég ekki sagt að ég verði með í kvöld," sagði Spree en Timberwolves mætir LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers á útivelli í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×