Sport

Dregið í körfunni í gær

Bikarmeistarar Keflavíkur í karla- og kvennaflokki í körfunni eiga erfiða leiki fyrir höndum í átta liá úrslitum Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar en dregið var í gær. Karlalið Keflavíkur sækir granna sína í Njarðvík heim en þessi tvö lið hafa staðið sig hvað best á þessu tímabili. Nýliðarnir í Intersportdeildinni, Fjölnir og Skallagrímur, mætast í Grafarvogi, Hamar/Selfoss tekur á móti Grindavík og á Egilsstöðum verður 1. deildarslagur þar sem Breiðablik sækir Hött heim. Kvennalið Keflavíkur mætir ÍS í Keflavík en liðið hefur ekki enn tapað leik á tímabilinu. Breiðablik tekur á móti Grindavík, Haukar fá Njarðvík í heimsókn og Tindastóll sækir Laugdæli heim á Laugarvatn. Leikirnir munu fara fram helgina 8. til 9. janúar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×