Sport

Iverson með 51 stig gegn Jazz

Allen Iverson var fyrsti leikmaðurinn í fjögur ár til að ná því afreki að skora 50 stig eða meira í tveimur leikjum í röð í fyrrakvöld þegar lið hans, Philadelphia 76ers, mætti Utah Jazz í NBA-körfuboltanum. Iverson skoraði 51 stig en það dugði ekki til því Jazz hafði betur í leiknum, 103-101. Með frammistöðunni varð Iverson sjöundi leikmaður NBA-deildarinnar til að ná þessum áfanga en áður höfðu Rick Barry, Elgin Baylor, Wilt Chamberlain, Bernard King, Michael Jordan og Antawn Jamison leikið sama leik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×