Sport

Dallas burstaði New York

Sex leikir voru í NBA-körfuboltanum í gærkvöldi. Dallas Mavericks burstaði New York Knicks í Madison Square Garden 123-94. Josh Howard tók 16 fráköst og skoraði 26 stig en Dirk Nowitski kom næstur með 23 stig. Dallas náði mest 46 stiga forystu í leiknum. Lebron James skoraði 26 stig fyrir Cleveland sem vann Minnesota 107-97. New Jersey Nets marði sigur á Charlotte, 94-91. Richard Jefferson skoraði 28 stig fyrir New Jersey. Dwane Wade skoraði 33 stig og átti 11 stoðsendingar þegar Miami Heat vann níunda leik sinn í röð. Miami, sem lék án Shaquille O´Neal, vann Boston Celtics 108-100. Sacramento sigraði Washington með 104 stigum gegn 93 og LA Clippers hafði sigur á New Orleans 100-91 í framlengdum leik. Bobby Simmons skoraði 30 stig fyrir Clippers.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×