Sport

Miami vann 9. leikinn í röð

Miðherjinn tröllvaxni Shaquille O´Neal lék ekki með sínum mönnum í Miami Heat aðfaranótt miðvikudags vegna meiðsla á kálfa. Það kom þó ekki í veg fyrir að Miami ynni sinn níunda sigur í röð en lið Boston Celtics var ekki mikil fyrirstaða. Heat vann leikinn, 108-100, og skoraði Dwayne Wade 33 stig fyrir Miami. Meiðsli O´Neals eru ekki talin alvarleg og þykir líklegt að hann verði klár í slaginn gegn Sacramento Kings í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×