Sport

Netkosning hófst í gær

Hinn árlegi Stjörnuleikur Körfuknattleikssambands Íslands fer fram í Valsheimilinu 15. janúar næstkomandi. Auk leiksins verður troðslukeppni og þriggja stiga skotkeppni í hálfleik en stefna sambandsins er að gera daginn að fjölskyldudegi. Að þessu sinni munu bestu íslensku leikmennirnir í Intersportdeildinni mæta bestu erlendu leikmönnunum en það er í fyrsta skipti sem það gerist. Körfuboltaáhugamenn geta valið byrjunarlið liðanna á kki.is en síðan munu íþróttafréttamenn velja fimm leikmenn í hvort lið en þjálfarar liðanna, Sigurður Ingimundarson hjá Keflavík, og Einar Árni Jóhannsson hjá Njarðvík, velja tvo síðustu menn liðanna. Netkosningin hófst í gær og er rétt að benda á að velja þarf tvo bakverði og þrjá framherja/miðherja í liðið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×