Sport

Carter með 23 stig í fyrsta leik

Níu leikir fóru fram í NBA-deildinni í gærkvöld og nótt. Richard Hamilton skoraði 37 stig fyrir Detroit sem sigraði New Jersey Nets í framlengdnum leik 100-90. Vince Carter lék fyrsta leik sinn fyrir Nets eftir kaupin frá Toronto. Carter skoraði 23 stig en haltraði út af í framlengingunni vegna meiðsla. Shaquille O´Neal skoraði 31 stig fyrir Miami sem sigraði Atlanta 116-102. Þetta var tólfti sigurleikur Miami í röð sem er félagsmet. Dwayne Wade skoraði 27 stig fyrir Miami. New York Knicks skellti Orlando Magic, Indiana burstaði New Orleans Hornets 100-82, Washington sigraði Charlotte Bobcats 106-87, Memphis burstaði Los Angeles Cippers 96-76, Seattle skellti Utah Jazz 98-88, Allen Iverson skoraði 28 sig fyrir Philadelphia sem lagði Portland 111-104 og Golden State rétt marði Denver 104-101.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×