Sport

Snæfell semur við Clemmons

Lið Snæfells í Intersportdeildinni í körfuknattleik, hefur borist liðsstyrkur. Sá heitir Calvin Clemmons og er frá Charlotte í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Hann er 2,03 metrar á hæð og vegur 113 kíló. Hann lék á sínum tíma með North Carolina háskólanum og Olympic High. Hann var með 12,8 stig, 11,2 fráköst og 3,1 varið skot að meðaltali með Olympic High. Clemmons, sem er 23 ára að aldri, lék síðast með Musel Pikes í Lúxemborg. Hann skoraði 25 stig, tók 18 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal tveimur boltum að meðaltali í leik í efstu deild þar í landi. Clemmons, sem mun leika stöðu miðherja hjá Snæfelli, kemur í stað Desmond Peoples sem fékk farmiða fyrir einn, aðra leiðina, til Bandaríkjanna í jólagjöf frá Snæfellsmönnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×